0
Ég eignaðist lítinn bróður 29 mars síðastliðinn. Hann var u.þ.b. 15 merkur og var 53 sentimetrar að lengd. Hann á að heita Þór og er auðvitað algjör dúlla og voðalega þægur. Hann fæddist á Akureyri og ég flaug þangað 1. apríl.
Þór er núna orðinn viku gamall og er rosa duglegur. Hann heldur eitthvað mikið haus sem við höldum að sé frekar óvenjulegt.
Í fyrradag fórum við í heimsókn til ömmu Bergþóru, Baldursheim. Þar fengum við indislegan mat og ég fékk að fara á snjósleða sem var mega gaman
Í gær fórum við í heimsókn til foreldra Bergþóru, og þegar við ætluðum að halda heim var svo vont veður að við þurftum að snúa við og gista þar yfir nóttu :/